laugardagur, desember 11, 2004

Gaman gaman

Jæja, þá er runninn af mér mesti hamurinn og ég orðin rólyndis-heimilisfaðir aftur. Við vorum að fá nýjan fjölskyldumeðlim. Sú er ferfætlingur og er aðeins 9 vikna þegar þetta er skrifað. Hún heitir Hrafntófta Askja og er hreinræktuð íslensk tík undan þeim Gerplu Ronju og Hektori, sem er með myndarlegustu hundum landsins og prýðir meðal annars bækling frá VÍS um hundatryggingar. Askja er róleg og blíð og hefur heillað alla í fjölskyldunni. Við erum að plana að fara með hana í sveitina mína og kynna henni fyrir Doppu frænku í Kolsholti.